Færsluflokkur: Bloggar
1.5.2008 | 23:52
Allt er þetta að verða
Sá mann fara í jarðhýsið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.5.2008 | 19:15
Yndislegur dagur
Það er nú meira hvað veðrið leikur við sunnlendinga þessa stundina. Það er yndislegt að vera utandyra enda hef ég verið það, að minnsta kosti að hluta til
Stóra mín bauð vinkonum sínum í kaffi í tilefni afmælisins og var sú gamla búin að útbúa kökur og heitan rétt fyrir dömurnar. Allaf er gaman þegar maður sér að það er alveg þess virði að leggja á sig svona smá bakstur þær að minnsta kosti borðuðu vel. Eyddi ég morgninum í að setja á kökur svo að ég gæti notið veðursins eftir hádegi, og tók ég smá rispu á frímerkinu mínu (garðinum), fór í Blómaval og verslaði mér smá tré og svo að sjálfsögðu kertaluktir til að hafa úti.
Svo skruppum við dúllan í Hagkaup og þar fuku seðlar, en sú stutta á afmæli eftir rúma viku og er búin að fá afmælispakkan, fyrir utan það sem stóra mín ætlar að versla fyrir mig í ammeríkunni
Já stóra mín fer á morgun og verður í hálfan mánuð, mikið á ég eftir að sakna hennar. Það er svo næst að hafa einhvern að spjalla við á morgnana áður en hún fer til vinnu. En vona ég samt innilega að hún eigi eftir að hafa gaman af þessari ferð
Ég mundi eftir að kaupa mér sólaráburð áðan, ekki vanþörf á þar sem ég er farin að líta út eins og humar, þó aðalega á bríngu og andliti. Eins gott að fara varlega í sólina
En núna ætla ég að fara og njóta síðustu geislanna.
Brosa
kv unns
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
30.4.2008 | 17:54
Skrýtið
CSI leikari handtekinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.4.2008 | 17:44
Alveg til
Varalitir seldir til styrktar Krabbameinsfélaginu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
29.4.2008 | 09:01
Í dag
eru 21 ár síðan ég eignaðist stóru mína. Til hamingju með daginn elsku krútta mín. Yfirleitt alltaf þegar börnin mín eiga afmæli fer ég í fortíðargírinn og rifja upp svona ymislegt um þessar elskur. Hún var til að mynda rosalega aktív lítil dama, með dökkar krullur og dökka húð, enda ég oft spurð um það hvort hún væri ekki íslensk í báðar ættir. Þeir sem þekkja til og hafa séð föðurlegg hennar, þeir spurja ekki.
En þessi elska var sem sagt mjög dugleg, sérstaklega við að gera allt sem ekki mátti ehemm. Margar ferðir fór ég með þessa elsku á slysó heima, eftir hinar ýmsu byltur og var mér oft sagt að hún hliti að vera búin til úr stáli að hluta
Á þessum árum bjó ég í raðhúsi á tveimur hæðum og að sjálfsögðu var ég með hlið bæði uppi og niðri svo að þessi elska væri ekki að detta í stiganum. En ekki leið langur tími þar til hún fattaði að draga stól úr herbergi á efri hæð, klifra upp á hann og svo bara hoppa!
Þar sem mér bókstaflega sýndist ég sjá fótbrot, var brunað upp á spítala og sú stutta sett í myndatöku hið snarasta. En það þurfti 4 fullorðna til að halda þessari litlu 2 ára hnátu niðri svo hægt væri að eiga eitthvað við hana. Sú stutta gerði sér lítið fyrir og beit frá sér til hægri og vinstri ó guð hvað ég var miður mín þar sem mér fannst þetta á einhvern hátt vera að lísa uppeldinu á henni, en svona var þetta og þegar hún var að fara(ekki fótbrotin) þá var bara hrægt á lækninn
Hún var ekki há í lofti þegar hún fór að vera hrifin af öllu sem snéri að snyrtivörum og vildi allaf hafa síðasta orð um hvernig ég ætti að vera máluð og ef ég var ekki með BLEIKAN varalit þá var ég ljót
Úff ég gæti haldið svona áfram í allan dag en best að láta þetta nægja núna
Eigum góðan BLEIKAN dag
kv unns
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
29.4.2008 | 08:06
Undarlegt rán
Rændu Playboy-púðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.4.2008 | 19:38
Bara vibbi!!
Austurríkismaður viðurkennir brot sín | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.4.2008 | 19:33
Á þetta að koma á óvart??
Skeljungur hækkar eldsneytisverð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.4.2008 | 11:38
Ágæt helgi að baki
Ekki getur maður kvartað mikið yfir veðrinu hér þessa dagana, en öll mín vorkun er með íbúm gamla heimastaðar minns, þar sem sjóar Kannski eru veðurguðirnir ekki ennþá búnir að fatta að Andrésar andar leikarnir eru búnir, svo burt með snjóinn
En hvað svo með það, þá átti ég ágætis helgi. Vinkona dúllurnar var hér alla helgina, fer örugglega að flytja búferlum hingað, en þær eru búnar að vera vinkonur síðan í leikskóla. Svona er þetta þegar maður flytur á milli hverfa, þá verða vinirnir eftir í gamla hverfinu og svo tekur við að afla nýrra á nýjum stað. En þær hafa haldið vinskapnum þannig að ég er alloft með næturgest hér um helgar Stundum er ég ekkert rosalega upplögð að vera með aukabörn en ég læt mig oftast hafa það. Hvíli mig bara þeim mun betur í sólinni á portugal
Svo á stóra mín afmæli á morgun, verður 21. Gumminn minn varð 25 þann 18, dúllan 9 ára 10 mai og Birnan mín 25 ára þann 13 maj. Nóg að gera hér sýnist mér á öllu. En um næstu helgi ætla Gummin og Birnan að halda upp á 50 ára afmæli!!!!!! Það verður örugglega æðislegt hjá þeim
En sólin heillar mig alveg upp úr skónum þannig að núna ætla ég að fara út á sólpall og drekka í mig sólina
Verum sæl í sinni
kv unns
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.4.2008 | 11:07
Vonandi er þetta eitthvað sem virkar
Bóluefni við brjóstakrabba? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)