Færsluflokkur: Bloggar
26.4.2008 | 10:21
Ekki alveg í lagi!
Eldur lagður að íbúðarhúsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.4.2008 | 15:42
Það styttist!
Nú styttist alltaf í að ég og dúllan förum til Portugal. Stóra mín er að fara til ameríku eftir viku og er ég mjög happy fyrir hennar hönd, en það er land sem mig langar ekki til! En ég er mjög spennt fyrir að fara til Portugal, hef ekki farið í svona sólarlandaferð áður.Systir mín fer með okkur og er hún kunnug þarna þannig að þetta verður örugglega alveg æðislega gaman
Ég er ennþá að velta mér upp úr þessu með danaveldi. Er ekki alveg að sjá að það sé nokkuð betra að vera þar. Ástandið í heiminum er ekki að bjóða upp á að það sé nokkuð betra, eða er ég bara orðin svona rugluð af öllum þessum hugsunum.
En allavegana sé ég ekki grænna gras þar megin. Og ekki heyrist mér atvinnulega séð að það sé nokkuð betra. En þetta er svona. Ég er komin með svo gott öryggisnet hér, bæði með geðlækninum og giktarlækni svo ég tími varla að fara frá því. Og svo líka er ég með smá vinnu hér sem gerir mér bara gott Þannig að frá minni hlið þá held ég að við getum haft það eins hér og í danmark ARG er alveg að gera útaf við sjálfa mig með þessum vangaveltum
Ég hef talað við fólk sem hefur farið svona og eitthvað heyrist mér á því að það þurfi aldeilis að hugsa út í þetta allt, þetta er enginn leikur og það veit ég vel en mér gengur ekki vel að sannfæra aðra með það.
En allt hlítur þetta að koma með tímanum, að ég held
En hætt í bili og ætla að halda áfram að velta öllu fyrir mér
kv unns
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.4.2008 | 15:06
Er ég heimsk eða??
Sturla: Ekki á okkar ábyrgð" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2008 | 09:06
svona er að svíkja
Wesley Snipes dæmdur í þriggja ára fangelsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.4.2008 | 08:54
Sumarbyrjun
Sumarið heilsaði með ágætum í gær, nema að það kom þvílík helli demba seinnipartinn. Ég lét að vísu sumarið ekki draga mig út heldur hékk inni og prjónaði Nú er ég nebblega að prjóna pils á sjálfa mig, það verður gaman að sjá hvernig það kemur út.
að vísu er líkamleg heilsa ekki búin að vera upp á marga fiska, sef ekki vel og er með endalausa verki, guð hvað ég þoli ekki þessa gikt. Dúllan mín fór í Fjölskildu og húsdýragarðinn og skemmti sér mjög vel, ekki lét hún rigninguna stoppa sig enda eins og hundur á sundi þegar hún kom heim.
Það er ósköp lítið að ske hjá mér þessa dagana og er ég með dragandi lappir í þessu flutningsmáli okkar. Er eitthvað svo kvíðin að hugsa um það. Kannski er ég bara alls ekki tilbúin á þessum tímapunkti að flytja, gæti verið.
Að minnsta kosti er ég að setja upp fyrir mér hvernig þetta gæti verið í framkvæmd og sé ekkert rosalega góðar leiðir. Er aðalega að pæla í með dúlluna og skóla þarna úti, veit ekki hvenær skólinn þarna úti byrjar og eitt og annað. En kannski ætti ég ekki að vera að velta mér upp úr þessu arg.
Jæja er hætt að röfla í bili
Hafið góðan dag
kv unns
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2008 | 23:52
Mikið er ég glöð
Sofnaði í blóðsýnatökunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
23.4.2008 | 08:05
Alveg snilldarmamma
Tók bílinn af syninum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.4.2008 | 10:42
Loks komin aftur
Ég er búin að vera eindæmum löt að blogga en ætla nú að fara að bæta úr því. Litla dúllan var lasin í síðustu viku, þannig að tímin fór í að reyna að hafa ofan af fyrir henni. Það er svo erfitt að vera með barn á þessum aldri lasið, sérstaklega þegar veðrið fór að taka við sér og hlýna
Henni fannst bara ekkert sanngjarnt að meiga ekki fara út að leika sér, þegar hún sá að krakkarnir voru allir komnir heim úr skólanum. Það kostaði tuð og annað að halda henni innandyra en hafðist að sjálfsögðu.
Svo var dóttir bestu vinkonu minnar að gifta sig um helgina og tók ég með gleði að mér að hjálpa til. Þannig á laugardaginn var ég og dúllan upp á skaga og var verið að skera niður kjöt og annað sem fylgir þegar matur er í boði í svona veislu.
Ég er alveg með það á tæru að þessi vinkona mín, til 25 ára, bókstaflega bjargaði sárarheillinni hjá mér. Ég er búin að vera í niðursveiflu dáltið góðan tíma núna og bara að fara og vera innan um allt þetta skemmtilega fólk, bjargaði mér
Svo var gærdagurinn tekinn snemma, skutlast uppeftir og haldið áfram undirbúningnum. Að þessu sinni kom stóra mín með líka til að rétta hjálparhönd og var það æði að hafa báðar dæturnar með sér.
Á meðan athöfnin var fór ég að leggja lokahönd á salinn, setja potta yfir og búa allt undir gleðina. Guð hvað brúðhjónin voru rosalega falleg, ég fékk bara tár í augun þegar ég sá þau koma, svo flott voru þau. Það var nattlega tekið á móti þeim með viðeigandi hætti, sem sagt hrísgrjónarigningu yfir þau, sem mér fannst flott, sérstaklega þar sem brúðurinn er mjög svo stríðin sjálf
Sem sagt yndislegur dagur og var vel borðað og vorum við á staðnum langt fram á kvöld við frágang og annað. Þessi dagur líður seint úr minni, bara æði
En eins og ég segji þá bjargaði þessi elskulega vinkona mín mér bókstaflega og á ég henni ástarþakkir fyrir að leyfa mér að vera partur af þessari gleði. Brúðina er ég búin að þekkja síðan hún var 3 ára gömul og yndislegt að sjá hversu hamingjusöm hún er í dag, enda brúðguminn gull af manni.
Það spillti heldur ekki fyrir gærdeginum að í veislunni hitti ég gamla vinkonu að norðan og var alveg meiriháttar að hitta hana aftur eftir margra ára fjarveru okkar á milli, Helga mín nú verðum við að hafa meira samband
Úff hvað ég er orðin þreytt í puttunum, best að hvíla þá um stund.
Erum við í raun hamingjusöm? Þetta er hlutur sem ég er að velta fyrir mér þessa daga
hætt
kv unns
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
12.4.2008 | 23:07
Miklar tilfinningarsveiflur
Ég er á fullu núna að reyna að fá mitt líf á hreint. Lenti í skemmtilegum samræðum í kvöld, og þar sem ég tel mig ekki neitt rosalega pólitíska, þá kom ég sjálfri mér á óvart.
Ég var stödd hjá systir minni og sonur minn sá elsti, var nebblega kosinn formaður nemendaráðs hjá háskóla íslands í gærkvöldi ( ég er að drepast úr stolti) og við fórum allt í einu að tala um stjórnmál. Ég er sem sagt alveg hræðilega pólitísk.
Nema hvað að ég var svo ánægð hversu sammála ég er þessari elsku syni mínum, loksins fann ég eitthvað sem við eigum saman
Þessi flotti drengur, sem ég á, er ekki alin upp hjá mér, en boj óboj, hann er frábær. Pabbi minn og mamma voru hans foreldrar, þó svo að hann hefur alltaf vitað að ég er móðir hans. Og núna akkurat á þessum tímapungti, er ég svo ánægð að eiga hann, þótt það sé bara lífrænt. Hann er frábær.
Hann er með fötlun sem er stam, þannig að hann, er miklu, miklu hæfari en ég að tjá sig, það finnst mér alveg indislegt. Að tala fyrir fullu húsi af fólki er honum ekki erfitt, þannig að ég tek ofan af fyrir honum.
Haukur minn, ég elska þig
Siglum seglum þöndum í nóttina.
kv unns
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
11.4.2008 | 17:49
Vöknuð til lífsins
Þá virðist sem heilinn í mér sé farinn að virka, aldeilis kominn tími til. Ég fékk svo mikla útrás í gær fyrir öllu sem ég er búin að vera að byrgja inní mér, að það hálfa væri nóg..Var nebblega í grúppu hjá doksanum og var ég tekin í nefið, kannski ekki alveg, en nóg til þess að vekja mig upp af dvalanum sem ég er búin að vera í.
Ég er svo þakklát að hafa þennan möguleika að vera í svona hópmeðferð, þar sem maður er svo speglaður og gefin góð ráð. Bara þetta að getað talað alveg um sín mál, hvort sem það er heilsan eða bara daglegt líf og fá til baka hvernig aðrir sjá það, það er hrein snilld.
Það var allt byrjað að fara í taugarnar á mér, maður, börn, vinir og heimilið. Bara það, að sjá þessa hluti setta upp á svo einfaldan hátt, það var ég ekki að fatta.
Þannig að í dag er ég þakklát og ljúf. Engin geðvonska bara umburðarlyndi ehemm, að mestu
Í dag var ég líka að vinna. Fyrir mér er það bara rosalega gott að getað farið og verið innan um ókunnugt fólk, svara í síma, skrásetja og þetta sem fylgir þessu starfi, bara lovely.
Nú er ég farin að vera einum of blíð og góð, gott, ja ég held það bara.
Svo gerði Birnan mín, mér greiða og verslaði svo mikla snilldarmoppu að núna elska ég að skúra, þeytist um alla íbúð með bros á vör og allt er hreint og fínt. En kannski er best að ég fari að hægja aðeins á mér, er þreytt og kannski bara með svefngalsa. Svaf ekki neitt rosalega vel um síðustu nótt, þar sem það tekur tíma fyrir heilann minn að melta allt sem við mig var sagt í gær. En ég sef bara þeim mun betur næstu nótt
Elskum lífið og brosum á móti sólinni
kv unns
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)