Er ekki komið nóg

af barlóm og leiðindum, það finnst mér. Þó svo í kringum mig er ekkert raunar gott að frétta, þá nenni ég ekki að leggjast í volæði

Jú sonur minn fékk uppsagnarbréf í gær, en við erum ekki að búa til þjóðarsorg úr því, við erum nefnilega famelía sem vill standa saman og gera gott úr öllu. Það koma betri tímar aftur en við verðum að standa saman eins og einn, ekki satt?

Hjá mér hefur alveg verið nóg að gera..Er orðin húsmóðir eins og ég var fyrir 20 árum síðan, sem sagt baka og elda mat á mjög svo hagstæðan hátt, og er ekkert að skammast mín fyrir það.

Dúllan mín fór í kvöld út að betlaCool sem sagt tók trukkið á hrekkjavöku og dreif 2 vinkonur með sér. Og mér til undrunar og gleði komu þessar hörkustelpur með nammi og smákökur eftir þessa ferðWizard

En að öðru leiti er ekkert mikið að mér og mínum að frétta, jú, stóra min var að flytja að heiman þannig að nú get ég velt mér upp úr sorg og sútTounge..Auðvitað sakna ég hennar en hún er ekkert barn lengur þannig að ég á ekkert að kvarta

En núna er komið langt fram yfir minn svefntímaSleeping

Er farin að sofa

Hafið það sem best og ekki kreppa ykkurWink

kv unns


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég kreppi mig sko ekki neitt og neita alfarið að leggjast í sorg og sút... alveg eins og þúGóða nótt heillin og sofðu vel

Jónína Dúadóttir, 1.11.2008 kl. 00:27

2 Smámynd: Helga skjol

Alveg er ég 100% sammála ykkur báðum, ég harðNEITA  því að leggjast í eymd og volæði yfir þessu öllu saman.

Knús á þig elskan mín

Helga skjol, 1.11.2008 kl. 07:44

3 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

hef líka ákvedid a dtaka öllu med jafnadargedi og jákvædni ..Finnst tad bara heppnast ágætlega.

Kvedja til tín frá Jyderup

Gudrún Hauksdótttir, 1.11.2008 kl. 11:48

4 Smámynd: Birna Dúadóttir

Engin kreppa í mínu lífi,hafðu það sem best sæta

Birna Dúadóttir, 1.11.2008 kl. 12:09

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Tek undir þetta engan sudda hér, þó maður stingi annað slagið þá ristir það ekki djúpa og við kunnum að takast á við þetta þau okkar sem eru eldri en tvævetur.
Knús til þín ljúfust
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 3.11.2008 kl. 18:02

6 Smámynd: Hulla Dan

Kreppulaus með öllu og fátæk eins og venjulega.
Sem sagt allt eins hjá mér.

Knús til þín

Hulla Dan, 4.11.2008 kl. 12:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband