18.10.2008 | 09:40
Komin á stjá.
Ekki hef ég verið upp á marga fiska síðustu 3 vikurnar. Fékk náttlega þessa flensulufsu sem var mig lifandi að drepa
Svo þegar allt fór á stað í bankabiluninni, þá rauk ég til og fór í bónus að hamstra. Í þrjá daga gerði ég þetta og svo skildi ég ekkert í því hvað ég væri slöpp og drusluleg þannig að ég ákvað að láta líta á mig svona til öryggis.
Jú mín komin með lungnabólgu, ekki skrítið að mér hafi fundist erfitt að anda. Svo doksi lét mig á pensilín og steraúða sem ég er búin að vera að nota til hægri og vinstri. En ég er ekkert orðin nógu góð, kannski bara svona hrikalega óþolinmóð.
En um síðustu helgi kom fallega famelían af skaganum og borðuðu með okkur á laugardeginum. Það var alveg yndisleg stund. Alexander er svo æðislegur, glaðlegur og góður strákur. Mér finnst ég vera að missa svolítið mikið af honum þar sem ég sé hann svo miklu sjaldnar en Nökkva þegar hann var ungabarn.
En svona er lífið og ég er bara ánægð með þær stundir sem ég fæ. Dúllan mín er bara byrjuð að taka samræmd próf, litla trítlu stráið mitt, alveg ótrúlegt hve tíminn er fljótur að líða.
En ég er bara ánægð með mig að hafa dröslast að hripa þessi orð niður. En jú, eitthvað gaman líka. Éger að fara með vinkonu minni og systir á mama mía singalong í kvöld. Mikið held ég að það verði mikið fjör, enda ætla ég að njóta þess og hafa skemmtilegt kvöld
En elskið hvort annað og brosum framan í náungann, það kostar ekkert
kv unns
Athugasemdir
Æts,velkomin á fætur,farðu vel með þig
Birna Dúadóttir, 18.10.2008 kl. 10:06
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 18.10.2008 kl. 10:18
Jónína Dúadóttir, 18.10.2008 kl. 11:32
Fadmlag til tín um gódann bata
kvedja frá Jyderup
Gudrún Hauksdótttir, 18.10.2008 kl. 14:41
Knús og batakveðjur ;)
Anna Margrét Bragadóttir, 18.10.2008 kl. 20:00
Farðu vel með þig Unnur mín
Kristín Gunnarsdóttir, 20.10.2008 kl. 10:08
Velkomin á fætur Unnsin mín, farðu vel með þig.
Ljós og orku til þín
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.10.2008 kl. 19:49
Farðu vel með þig
Anna Ragna Alexandersdóttir, 31.10.2008 kl. 12:01
Tek undir það Unsin mín og hvernig væri að þú mundir byrja á sjálfum þér,
Taktu utan um þig og farðu betur með þig ljúfust.
Knús
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.10.2008 kl. 21:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.