1.7.2008 | 20:14
Ég þakka
fyrir mig og er bara glöð yfir að einhver nennir að lesa bloggið Ég er bara sátt við mig og aðra, enda er ég í rosalega góðum gír
Ég er að fara upp á skaga um helgina og ég er alveg að fara yfirum af tilhlökkun þar sem litlu gaurarnir búa þar. Það er ekkert smá gaman að getað verið með þeim um helgina.
Í fyrra fórum við á írska daga og við vorum yfir okkur hneyksluð, það var enginn virðing borin fyrir einu eða neinu. Vonandi verður breyting þar á!
Ég og kallinn minn eigum 10 ára brúðkaupsafmæli á föstudaginn og er ég og sonur minn búin að plana matarboð handa okkur familíunni.
Ég hlakka rosalega mikið til. En svona af öðru er bara gott, okkur líður vel og erum öll í góðum málum, sorry ég gleymdi, Stóra mín er búin að vera veik en er ölla að koma til
Elska alla, konur og kalla
kv unns
Athugasemdir
Flottust
Birna Dúadóttir, 1.7.2008 kl. 22:20
Jónína Dúadóttir, 2.7.2008 kl. 07:24
æji hvað það væri nú gaman að hitta þig á þeim Írsku en ætli maður láti ekki bara vaglaskóg duga þessa helgina
Risa knús á þig inní daginn elskan
PS reyndi nokkru sinnum að hringja í þig um daginn enn ekkert gekk að ná samb.
Helga skjol, 2.7.2008 kl. 08:55
Hulla Dan, 3.7.2008 kl. 04:44
Til hamingju með brúðkaupsafmælið og vona að næstu ár verði ykkur gæfurík
Hrönn Jóhannesdóttir, 4.7.2008 kl. 01:06
Til hamingju
Birna Dúadóttir, 4.7.2008 kl. 07:14
Frábært að heyra hvað þú ert velstemd Unnur mín. Skemmtu þér rosa vel um helgina, ég bið að heilsa öllum, vonandi batnar stóru þinni fljótt. og já til hamingju með brúðkaupsafmælið ykkar
Sigríður Svala Hjaltadóttir, 4.7.2008 kl. 15:50
Til hamingju með brúðkaupsafmælið í gær.
Sá eitthvað um að nóttin hefði verið viðburðarrík á írskum dögum. Vona að þú sért samt að skemmta þér vel.
Jóna Á. Gísladóttir, 5.7.2008 kl. 12:11
Gaman að heyra að allt gengur vel hjá þér . Skemmtu þér vel um helgina og til hamingju með brúðkaupsafmælið. Og megi gleði og gæfa fylgja ykkur um ókomin ár.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 5.7.2008 kl. 17:28
Vonandi hefur þú skemmt þér vel og átt góða helgi
Og til hamingju með brúðkaupsafmælið
Didda, 7.7.2008 kl. 09:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.