21.6.2008 | 23:23
Mín komin heim
Jæja nú er ég komin heim frá albuavera og það var ekkert smá gaman Ég og dúllan og auðavitað systir mín, við höfðum það alveg yndislegt, eða það fannst mér
Hitinn var svolítið meiri en ég vildi en svona er þetta. Ég hef aldrei verið svona brún, að ég held, frá fæðingu, svo ég má vera mjög sátt.
Sólin er eins og dúllan segir rosalega heit þarna í Portugal, var ekki alveg að skilja að það gæti verið svona heitt hér, með sömu sólina.
Við fórum flest kvöld út að borða og sú stutta var alltaf til í að smakka eitthvað nýtt, sama hvað var. Mikið var ég fegin hversu mikla matarlist hún hafði, hún var allaf að borða og gerði mig svo happy
En sem sagt þá er ég komin heim og lífi'ð er farið að taka á sig venjulega mynd, sem sagt þjóna en ekki láta þjóna sér
Þvílíkt frí fyrir mig að getað labbað út af íbúðinni án þess að þurfa að þrífa sjálf og búa um OMG. En svona er þetta bara, þannig að ég er komin í mína gömlu rútínu og þannig er það bara
En föðmum hvort annað og gerum lífið að leik
kv unns
Athugasemdir
Vertu velkomin
Birna Dúadóttir, 22.6.2008 kl. 03:18
Helga skjol, 22.6.2008 kl. 07:55
Velkominn heim Unnur mín, altaf gott að komast í frí og þurfa ekki að elda eða þrífa.
Knus til þín
Kristín Gunnarsdóttir, 22.6.2008 kl. 08:40
Velkomin heim

Jónína Dúadóttir, 22.6.2008 kl. 08:52
Velkomin heim og ánægjulegt hvað þú hefur notið ferðarinnar. Yljaðu þér á minningunum.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 22.6.2008 kl. 13:01
Velkomin heim
Hulla Dan, 23.6.2008 kl. 06:08
það er gott að fá svona tilbreytingu í lífið. Og mjög gaman. Mætti líka alveg vera oftar
Jóna Á. Gísladóttir, 29.6.2008 kl. 21:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.