22.5.2008 | 17:30
Ennþá lasinn
Skil bara ekki af hverju þessi flensa fer ekki, kannski er verið að kenna mér þolimæði, aldrei að vita. En dagarnir hafa sem sagt farið í að liggja, þrífa pínu, liggja og þrífa pínu meira
Litli gormur gummason er vikugamall í dag og ég er ekki farin að mega sjá hann. En ég knúsa hann bara þeim mun meira þegar að því kemur. Nökkvi minn er svo stoltur stóri bróðir og auðvitað vissi ég að svo yrði, hann er svo mikið æði gaurinn.
Eina jákvæða við þessa flensu er að nokkur grömm hafa fokið, þannig að líklega fæ ég bara bikini fyrir sólina ehemm.Dúllan mín er farin að verða svo spennt fyrir ferðinni og mikið verður þetta gaman, sem sagt gaman saman
Stóra mín er svo dugleg er að leiða fundi á klepp og vogi eins og ekkert sé og finnst mér það svo yndislegt að sjá þessar breytingar á henni að það hálfa væri það
Núna er ég að taka mig til (fyrir sjónvarpið) og ætla að syngja með. Ég fann nefnilega textan í dagskránni og sem sagt, ég og eurobandið erum að fara að syngja
En ætli ég láti þetta ekki nægja í bili
hvetjum okkar fólk oyea
kv unns
Athugasemdir
Farðu nú að láta þér batna mín kæra, já ég er alveg sammála því að hún stóra þín er ekkert smá dugleg að leiða fundi.
Knús á þig inní kvöldið gullið mitt og njóttu eurovision í kvöld og trúum því að við komums áfram í þetta sinn
Helga skjol, 22.5.2008 kl. 18:08
Já ég vona að þér fari að skána. Ég náði mér í aðra flensu í dag... Bara ógeðslega heppin að geta notað ALLA frídagana mína í að liggja í vibba.
En nú er þetta allt á réttri leið, nema ég fái flensu 3 á morgunn, sumir eru bara endalaust heppnir.
Þá eru danir á svið og ég farin að hvetja...
Hulla Dan, 22.5.2008 kl. 19:55
Bíddu nú við Hulla, viltu bara lemja þetta niður, það var sagt við mig Og Sigga mín, ég er að borða vítamín út í eitt en ojjjjjjjjjjj, ekkert skeður
Unnur R. H., 22.5.2008 kl. 22:13
Vonandi fer þér að batna Unnur mín, hef ég heirt að þessi bjevítans flensi stoppi lengi við.
Knus á þig
Kristín Gunnarsdóttir, 23.5.2008 kl. 11:02
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 15:30
Vinandi fer þér að batna Unnur mín. Það er nú merkilegt hvað mikið er um flensur svona á vordögum, þegar við viljum vera hressar og njóta útiveru.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 23.5.2008 kl. 20:32
Dugleg stóra stelpan þínLáttu þér nú batna vinan, tekurðu lýsi
Jónína Dúadóttir, 24.5.2008 kl. 07:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.