2.5.2008 | 21:49
Bara áhyggjufull
Ég er alveg hræðileg núna er stóra mín á leið yfir hafið stóra og lendir í ammmeriku kl 24 á okkar tíma. Ég er strax farin að hafa áhyggjur af henni, enda er égekkert rosa mikil ameríku fan
Ég er nefnilega ekkert hrifin af ameríku hvort sem það er austur, vestur, suður eða norður. Ég er bara svona, ekkert við því að gera sorry fyrir ameríkufan
Þegar ég var unglingur ( 17) var ég með manni sem var að vinna hjá hernum og með því sama var ég gestur á vellinum af og til. Ég var þó svo heppin að kynnast hjónum sem voru yndisleg og eiginlega í dag voru þeirra kynni til að redda mér í gegn um svo mikið. Og konan reyndi að benda mér á hversu veikur maðurinn sem ég var með, væri, en ég sem var bara 17 og búin að lenda í ýmsu sem ég segi frá þegar ég get, þá var ég að treysta því sem sagt var við mig væri satt. Nema að oft er ég með hugan hjá þessari konu sem ég dýrkaði. Mér finnst virkilega leiðilegt að geta ekki haft upp á henni þar sem ég vildi láta stóru mína í hendurnar a henni.
Guð, hvað er erfitt að vera svona háð börnunum Ég er nefnilega svo hræðilega háð öllum mínum að það hálfa væri nóg
Ég er eiginlega með það á hreinu að fyrir næstu helgi verð ég orðin 2 barna amma. Hann Nökkvi minn er hjá mér um helgina, þar sem ég vil endilega að Birnan mín fari að hvíla sig þar sem hinn guttin er alveg að koma. Mikið vildi ég að hann myndi heita Unnar en það er gaman að láta sig dreyma hehehe.
En núna ætla ég að koma öllum börnunum í svefn.
Love u
kv unns
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.