25.4.2008 | 08:54
Sumarbyrjun
Sumarið heilsaði með ágætum í gær, nema að það kom þvílík helli demba seinnipartinn. Ég lét að vísu sumarið ekki draga mig út heldur hékk inni og prjónaði Nú er ég nebblega að prjóna pils á sjálfa mig, það verður gaman að sjá hvernig það kemur út.
að vísu er líkamleg heilsa ekki búin að vera upp á marga fiska, sef ekki vel og er með endalausa verki, guð hvað ég þoli ekki þessa gikt. Dúllan mín fór í Fjölskildu og húsdýragarðinn og skemmti sér mjög vel, ekki lét hún rigninguna stoppa sig enda eins og hundur á sundi þegar hún kom heim.
Það er ósköp lítið að ske hjá mér þessa dagana og er ég með dragandi lappir í þessu flutningsmáli okkar. Er eitthvað svo kvíðin að hugsa um það. Kannski er ég bara alls ekki tilbúin á þessum tímapunkti að flytja, gæti verið.
Að minnsta kosti er ég að setja upp fyrir mér hvernig þetta gæti verið í framkvæmd og sé ekkert rosalega góðar leiðir. Er aðalega að pæla í með dúlluna og skóla þarna úti, veit ekki hvenær skólinn þarna úti byrjar og eitt og annað. En kannski ætti ég ekki að vera að velta mér upp úr þessu arg.
Jæja er hætt að röfla í bili
Hafið góðan dag
kv unns
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.