30.3.2008 | 19:52
Lasin!
Að vera lasin er eitthvað sem ég alls ekki þoli. Ég kláraði þó að vinna á föstudaginn, en fann að ég var eitthvað öðruvísi en vant er þegar líða fór á kvöldið..Í gær steinlá ég svo, var með hræðilegan hausverk og beinverki og svaf má segja frá hálf sjö. Svo er ég búin að sofa meira og minna í allan dag.
En so what að vera veik, en skapið í mér, það er alveg hræðilegt. Það jaðrar við að vera geðveiki, ég urra og gelti á fólk í kringum mig og reiðin urgar bókstaflega ofan í mér..Þetta er nú ekki alveg í lagi. Sem betur fer hefur dúllan verið að heiman að mestu leyti þessa helgi svo að hún hefur ekki verið fyrir barðinu á geðveikinni í mér!!
Samt held ég að þetta sé einhver samtenging hjá mér, að vera veik og birtan sem er farin að angra mig. Ég þoli nebblega ekki vorið og sumarið út af birtunni Þunglyndið er alveg langverst á þessu tímabili, alveg öfugt á við svo marga sem ekki þola skammdegið. Ég elska það.
Æji ég nenni ekki að velta mér upp úr þessu Verð að vera jákvæðari ójá
Að vísu komu skagakrúttin í heimsókn í gær og var ég svo rugluð og misheirði næstum allt sem sagt var, nema þeim fannst ég bara fyndin, gott að gleðja aðra
En ég ætla að fara í rúmmið núna og vera frísk á morgun
Verum góð og elskum náungann
Athugasemdir
Góðan bata
Jónína Dúadóttir, 30.3.2008 kl. 20:05
Vonandi fer þér að batna Unnur mín.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 30.3.2008 kl. 20:25
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 21:21
Láttu þér batna ;)
Anna Margrét Bragadóttir, 30.3.2008 kl. 23:36
mikið kannast ég við þetta ,,sumarið lagðist ekki vel í mig áður en er rett að venjast því núna ég fannst betra þegar það var smá myrkur kannski flokkast það að vilja ekki vera áberandi ,kannski ekki en óska þér samt góðan bata kveðja Ólöf Jónsdóttir
lady, 30.3.2008 kl. 23:55
Elsku vinkona,mikið skil ég þig,er sjálf að berjast við þessa pest og hún er að gera mig GEÐBILAÐA,farðu vel með þig mín kæra og í guðana bænum ekki fara alltof snemma út.Góðan bata.
Knús á þig
Helga skjol, 31.3.2008 kl. 06:13
Vona að þú sért að hressast og hafir það gott
Hulla Dan, 31.3.2008 kl. 10:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.