7.3.2008 | 17:35
Bara eitthvað þreytt
í dag..Veit ekki alveg af hverju þar sem ég hef ekki gert neitt í allan dag, nema að sitja á rsk og glápa eitthvað út í loftið..En dagurinn er ekki búin þannig að ég get ennþá bætt fyrir þessa leti.
Seinni parturinn á miðvikud var hreint ekkert skemmtilegur, allt sem ég gerði kostaði peningarútlát..Hefði alveg getað hugsað mér að eyða í annað en pensilín og varahluti, en svona er þetta..Mikið svakalega er dýrt að neyðast til að vera á pensó, fimm þúsund kall góðan daginn og svo vantaði mig smáhlut í þvottavélina, og fauk annar fimmari, og þetta drasl var meira að segja búið til úr plasti!!!
Sem sagt bara pirruð..Gærdagurinn var ekkert skárri, lét bara allt fara í taugarnar á mér, eins og ég hefði ekkert annað með tímann að gera. En hann skánaði þó þegar ég fór í gruppuna mína og var ég nokkuð sátt þegar ég kom heim í gærkvöldi. LOKSINS! Annars var ég að kaupa mér fræ til að setja niður, sem sagt ætla að rækta mitt krydd sjálf!!
Hef alveg ákveðið að ég ætla mér að vera hippakelling í danmörku, ekki nokkur vafi á því.....Og rækta mitt grænmeti, krydd og ávexti sjálf og hana nú!! Held að ég eigi eftir að fíla það ojabb
Nú er best að skuta fræjunum í potta og setjast síðan aftur niður og bíða eftir að það vaxi
Höfum góða dagrest kv unns
Athugasemdir
Jónína Dúadóttir, 7.3.2008 kl. 19:12
Helga skjol, 7.3.2008 kl. 19:26
heheheh....hippakelling í Danmörku sem ræktar sitt eigið krydd...... sé þig allveg í anda.....
Fanney Björg Karlsdóttir, 7.3.2008 kl. 19:44
hæ hvar ættlar þú að bua í danaveldi. Þetta með deit, það held ég varla, nýt þess að ráða mer sjálf.
Kristín Gunnarsdóttir, 7.3.2008 kl. 21:28
Hæ Kristín við stefnum á Christianfeld eða Kolding, erum svonna að skoða þetta
Unnur R. H., 7.3.2008 kl. 22:54
Hitti Ernu í kvöld.Kveðja og knús til ykkar.
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 8.3.2008 kl. 00:57
Hmm siturðu ennþá við pottanaEitthvað farið að spretta
Birna Dúadóttir, 8.3.2008 kl. 01:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.