13.9.2007 | 09:39
Pirrrrringur.
Eitthvað hafa allir á mínu heimili farið vitlaust framúr í morgun!! Dúllan var með allt á hornum sér,vildi ekkert nesti, fannst maturinn sem boði er í skólanum í dag vondur, og svona mætti lengi upp telja. Kallinn á heimilinu úldinn og var það ekki til að bæta skapið í húsmóðrinni , sem sagt mér Hann klaufaðist til að stíga á nagla í gærkvöldi og er að drepast í fætinum, en að fara og láta skoða það, ó nei, over mæ ded boddí, eins og hann vildi láta...Þetta er búið að verða þess valdandi að nú er ég hræðilega skapvond og fúl Er alveg yfir mig hissa á að Randver var rekinn, á ekki orð yfir það..Skil þetta bara ekki. Enda kannski ekki fyrir mig að skilja En gærdagurinn var líka fullur af glundroða hjá mér.. Vill bara að Stóra mín flytji aftur heim, EKKI SEINNA EN STRAX, þar sem ég vissi að samband sem stofnað er til á Vogi gengi aldrei upp En auðvitað er hún orðin fullorðin og verður að ráða þessu sjálf en von hef ég um að fyrir helgi verði hún flutt aftur heim til mömmslu gömlu Var í stórræðum við Sorpu í gær þar sem ég og Gumminn minn fórum með fullan sendlann af ónýtum húsgögnum, timburdrasli og dóti og lentum náttúrulega í að þurfa að flokka allt helv.. drasli sjálf í gáma..Hefði það nú verið allt í lagi, nema að það var hellidemba og ekki fannst þurr þráður á mér við heimkomu...En íllu best er afloknu og þetta er búið, þannig að ég get verið ánægð með það
Daginn í dag ætla ég svo að nota við matarstúss til að frysta og hafa gaman af því Úff hér er byrjað að hvessa hressilega þannig að skýring á skapsveiflum heimilismanna er kominn jíbbbbíí
well nú ætla ég að láta skap mitt bitna á saklausu folaldakjöti og hætta þessu rausi
kv unns
Athugasemdir
Það verður sem sagt barið folaldakjöt hjá þér í matinn
Birna Dúadóttir, 13.9.2007 kl. 17:48
Vonandi varstu góð við folaldakjötið!! Skilaðu kveðju til bóndans og segðu honum frá mér að hunskast til að láta kíkja á fótinn
Huld S. Ringsted, 13.9.2007 kl. 19:50
Tanke báðar auðvitað er folaldakjöt í matinn og Huld skila þessu til gamla
Unnur R. H., 13.9.2007 kl. 19:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.